Úthlutun úr Málræktarsjóði 2026

Auglýst var eftir umsóknum um styrki 16. nóvember 2025 og var umsóknarfrestur til 16. janúar. Alls bárust 16 umsóknir og var sótt um samtals 19.651.250 krónur. Samtals var ákveðið að veita 6.900.000 kr. í styrki.

 

Eftirtaldir hlutu styrk að þessu sinni:

 

  • Ágústa H. Lyons Flosadóttir 600.000 kr. styrk fyrir verkefnið Ensk-íslensk lögfræðiorðabók.
  • Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir 1.000.000 kr. í styrk fyrir verkefnið Íðorðasafn í leiklist.
  • Birna Arnbjörnsdóttir og Renata Emilsson Péskova 500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Annarsmálsfræði.
  • Ritstjórn Orðaskrár Íslenska stærðfræðafélagsins og Benedikt Steinar Magnússon og Einar Bjarki Gunnarsson 1.500.000 kr. í styrk fyrir verkefnið Orðaskrá Íslenska stærðfræðafélagsins.
  • Íslenska málfræðifélagið 500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Íslenskt mál.
  • Karl Benediktsson (f.h. Félags landfræðinga á Íslandi) 1.500.000 kr. styrk fyrir verkefnið Íðorðasafn í landfræði: Endurskoðun og uppfærsla.
  • Sveinbjörn Þórðarson 300.000 kr. styrk fyrir verkefnið Áframhaldandi þróun og viðhald á netorðabókinni ensk.is.
  • Viktor Árnason og Rafn Sigurðsson 1.000.000 kr. styrk fyrir verkefnið Íðorðasafn spendýra.

Fleiri færslur