Megináherslur í starfi nefndarinnar 2024–2027
Eitt af mikilvægustu verkefnum Íslenskrar málnefndar er að vinna markvisst að því að íslenska haldi gildi sínu og verði áfram nothæf og notuð á öllum sviðum íslensks þjóðlífs.
- mars 2009 samþykkti Alþingi íslenska málstefnu sem gefin var út í ritinu Íslenska til alls.[1] Til stendur að endurskoða stefnuna á næsta ári. Þá var í júní 2019 samþykkt á Alþingi Ályktun um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi nr. 36/149 sem grundvallaðist að verulegu leyti á ábendingum Íslenskrar málnefndar og er mikilvægt viðmið fyrir starf málnefndarinnar. Árið 2021 sendi málnefnd frá sér málstefnu 2021–2030 en enn hefur henni ekki verið fylgt eftir af stjórnsýslunni. Ráðherra lagði fyrir þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2024–2026 sem samþykkt var á Alþingi 8. maí síðastliðinn.
Á skipunartíma starfandi Íslenskrar málnefndar 2024–2027 mun hún í samvinnu við menningar- og viðskiptaráðuneyti fylgjast með því að unnið verði markvisst að markmiðum þingsályktunartillögunnar og málstefnunnar.
Mörg verkefni bíða úrlausnar og verður tekist á við þau eftir því sem aðstæður leyfa en hér verða nefnd þau verkefni sem Íslensk málnefnd hyggst einkum beita sér fyrir á skipunartímanum:
- Regluverk íslensku: Gert er ráð fyrir að ályktun um stöðu íslenskrar tungu árið 2025 snúist um þetta mál. Lögum um íslenska tungu fylgja engin viðurlög og þau eru því ekki jafngild t.d. skattalögum eða umferðarlögum. Spyrja má hvort þau eigi að vera það. Þá vantar skýrari skilgreiningu á ferlinu þegar Íslensk málnefnd veitir áminningar vegna brota á lögum um tunguna og hvort ráðuneytinu ber að fylgja ábendingum nefndarinnar eftir ef þeim er ekki svarað fullnægjandi. Kanna þarf og læra af reynslu annarra þjóða sem beitt hafa viðurlögum, t.d. Eistlendinga og Frakka. Rætt hefur verið um það á síðustu árum hvort þurfi að uppfæra óopinberan ritmálsstaðal íslensku, að hann sé of fornlegur og ekki í samræmi við breytingar á þjóðfélaginu. Í öllum þjóðfélögum eru einhvers konar viðmið um vandað mál en þau mega ekki fjarlægjast of mikið almennt mál. Ætti málnefndin að beita sér fyrir því að hafin verði vinna við endurnýjun málstaðalsins í samvinnu við Árnastofnun og aðra?
- Íslenska, snjalltæki og unga fólkið: Þetta yrði höfuðatriði ályktunar um stöðu íslenskar tungu árið 2026. Snjalltækjavæðing og samfélagsmiðlar fela í sér miklar áskoranir fyrir tungumál sem ekki eru í ráðandi stöðu. Íslenska er þar lítt áberandi og það getur haft neikvæð áhrif á stöðu hennar og fækkað umdæmum. Áhersla stjórnvalda á máltækni á síðustu árum er sterkt andsvar við þessu og ræða þarf til hvaða frekari aðgerða er hægt að grípa. Frumkvæði menningar- og viðskiptaráðuneytis að nýrri íslenskusíðu Árnastofnunar m.is (https://m.is) fyrir yngra fólk og þá sem er að læra íslensku sem annað mál er frábær áfangi en sjá þarf til þess að vefurinn verði þróaður áfram. Kanna þarf hvaða önnur skref er hægt að taka til að gera íslensku meira áberandi í snjalltækjum og nýta tæknina til að greiða leið tungunnar að yngra fólki.
- Miðlun listar og fróðleiks á íslensku: Þetta yrði höfuðatriði ályktunar um stöðu íslenskar tungu árið 2027. Þörf er á skýrri aðgerðaáætlun um þetta efni ekki ósvipaðri þeirri sem áður var til í máltækni. Handhægt vefalfræðirit þarf að verða til á næstu fimm árum og mikilvægt er að stjórnvöld styrki það mál myndarlega þannig að íslenska sitji við sama borð og stærri tungumál. Eins þarf að styðja betur við listir og menningu á íslensku sem eiga erfitt með að keppa við erlent efni. Efla þarf listasjóði til mikilla muna og leggja áherslu á að miðlun listar fari fram á netinu jafnt sem utan til að hún nái til þeirrar kynslóðar sem mest sækir sér afþreyingu og fróðleik þar.
Íslensk málnefnd er sammála um að leggja höfuðáherslu á þessi þrjú atriði næstu þrjú árin. Verður m.a. efnt til málþinga um hvert og eitt og reynt að vekja athygli á mikilvægi þess að efla stöðu íslenskrar tungu. Auk þess mun ályktun hvers árs snúast um þau.
Íslensk málnefnd
Menntamálaráðherra skipar Íslenska málnefnd til fjögurra ára í senn. Hún starfar samkvæmt 6. grein laga nr. 61/2011, um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Í 6. grein segir meðal annars: „Hlutverk Íslenskrar málnefndar er að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar tungu og gera tillögur til menntamálaráðherra um málstefnu, auk þess að álykta árlega um stöðu íslenskrar tungu. Málnefndin getur átt frumkvæði að ábendingum um það sem vel er gert og það sem betur má fara við meðferð íslenskrar tungu á opinberum vettvangi.“
[1] Íslensku til alls má nálgast á vef mennta- og barnamálaráðuneytis (www.menntamalaraduneyti.is) og á slóðinni www.íslenskan.is.

