Málþing um læsi og námsorðaforða verður haldið í Eddu
6. maí 2026 kl. 15.00–17.00
Kynnt verður staðan hér á landi, fjallað um tungumál skólans sem forsendu námsárangurs, um gagnreyndar kennsluaðferðir sem henta fjölbreyttum nemendahópum og hvernig er gagnlegt að styðja kennara í þeirra flóknu verkefnum.
Málþingið er haldið að frumkvæði Íslenskrar málnefndar í samstarfi við sérfræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Flutt verða fjögur stutt erindi:
- Hrakandi læsi nemenda á íslensku – Ármann Jakobsson, Íslensku- og menningardeild, Hugvísindasviði HÍ
- Staða barna með íslensku sem annað mál – Elín Þöll Þórðardóttir, McGill háskóla í Quebec, Kanada.
- Gagnlegur stuðningur við kennara í vinnu með orðaforða – Auður Pálsdóttir, Deild faggreinakennslu, Menntavísindasviði HÍ
- Hvers konar verkfæri virka? Horft til framtíðar – Sigríður Ólafsdóttir, Deild faggreinakennslu, Menntavísindasviði HÍ
Í pallborði verða Víðir Reynisson, Jón Pétur Zimsen, Snorri Másson, Mjöll Matthíasdóttir og Signý Gunnarsdóttir.
Upptaka af málþinginu er hér.
Í Málfregnum 36 eru greinar sem tengjast efni málþingsins.

