Íslensk málnefnd býður til málræktarþings fimmtudaginn 24. september 2026 sem haldið verður í Eddu, Arngrímsgötu 5, og hefst kl. 15.
Fundarstjóri verður Eva María Jónsdóttir.
Dagskrá málræktarþingsins:
Kl. 15 Logi Einarsson: Ávarp
Kl. 15.10 Ályktun um stöðu íslenskrar tungu 2026. Guðrún C. Emilsdóttir les.
Kl. 15.20 Atli Jasonarson: Á gervigreindin að gæta tungu minnar?— Um stór mállíkön og smærri tól.
Kl. 15.30 Iris Edda Nowenstein: Hvað gerist þegar heilbrigðistækni virkar ekki á íslensku?
Kl. 15.40 Óttar Kolbeinsson Proppé: Getum við haldið í þórðargleðina? Um áhrif gervigreindar á málsöguna.
Kl. 15.50 Anna Björk Nikulásdóttir: Tækin tala íslensku: Íslenskar raddir í snjalltækjum.
Kl. 16.00 Stefán Ólafsson: Margt ósagt: Þörfin fyrir marghátta íslensk málgögn.
Kl. 16.10 Viðurkenning Íslenskrar málnefndar afhent. Formaður afhendir.


