Íslensk málnefnd býður til málræktarþings fimmtudaginn 25. september sem haldið verður í Eddu, Arngrímsgötu 5, og hefst kl. 15. Yfirskrift málræktarþingsins er Íslenska og stjórnsýslan
Dagskrá málræktarþingsins:
- Kl. 15.00 Logi Einarsson: Ávarp
- Kl. 15.10 Jóhannes Bjarni Sigtryggsson: Ályktun um stöðu íslenskrar tungu 2025.
- Kl. 15.20 Helga Guðrún Bjarnadóttir: Laga- og reglugerðarákvæði um notkun þjóðtungna og opinberra mála í 15 Evrópulöndum
- Kl. 15.30 Þórunn Anna Árnadóttir: „Auglýsingar sem höfða eiga til íslenskra neytenda skulu vera á íslensku.“
- Kl. 15.40 Rannveig Sverrisdóttir: Tvær málnefndir: Íslenskt táknmál og stjórnsýslan.
- Kl. 15.50 Bragi Valdimar Skúlason: Frábær upplifun!
- Kl. 16.00 Magnea Matthíasdóttir: Þegar lamb verður geit.
- Kl. 16.10 Viðurkenningar Íslenskrar málnefndar afhentar.
- Kl. 16.20 Léttar veitingar.


