Íslensk málnefnd býður til málræktarþings fimmtudaginn 28. september sem haldið verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 15.
Yfirskrift málræktarþingsins er Íslenskunám nýrra Íslendinga.
DAGSKRÁ
15:00 Formaður Íslenskrar málnefndar setur þingið (Ármann Jakobsson)
15:05 Ályktun um stöðu íslenskrar tungu 2023 kynnt (Eva María Jónsdóttir og Luciano Dutra)
15:15 Kristrún Heiða Hauksdóttir og Hallgrímur J. Ámundason: Fjósarímur nútímans – íslenskan og stjórnsýslan
15:25 Stefanie Bade: Nýjar áskoranir sem tækifæri fyrir öflugt rannsóknarstarf.
15:35 Erla Guðrún Gísladóttir: Fyrstu skref í íslenskunámi ungmenna.
15:45 Jóna Dís Bragadóttir: Hvað get ég orðið?
15:55 Kolbrún Friðriksdóttir: Viðhorf til íslensku.
16:05 Grace Achieng: Bara hlusta.
16:15 Afhending viðurkenningar Íslenskrar málnefndar 2023.
16:20 Þinglok og léttar veitingar.