Íslensk málnefnd fagnar því að Neytendastofa hafi gert átak í að fylgja eftir notkun íslensku á matseðlum og í markaðssetningu veitingastaða í miðbæ Reykjavíkur. Niðurstöður nýlegrar úttektar Neytendastofu sýna að töluverður árangur hefur náðst. Við skoðun á 83 veitingastöðum í miðborg Reykjavíkur kom í ljós að 34 þeirra birtu aðeins matseðla og annað kynningarefni á ensku en af þeim hafa 18 nú þegar gert breytingar og birta nú matseðla á íslensku. Þetta er mikilvægur áfangi í að tryggja sýnileika íslenskrar tungu. Samkvæmt lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu skulu auglýsingar sem höfða eiga til íslenskra neytenda vera á íslensku.
Málræktarþing 2026
Íslensk málnefnd býður til málræktarþings fimmtudaginn 24. september 2026 sem

